SKILMÁLAR

Viðskiptaskilmálar fyrir vefverslun Húrra Reykjavík

Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru og þjónustu Húrra Reykjavík til neytenda. Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum. Skilmálinn og aðrar upplýsingar á hurrareykjavik.is eru einungis fáanlegar á íslensku. Um neytendakaup þessi er fjallað í lögum um neytendakaup, lögum um samningsgerð, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, lögræðislög og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Hér eftir er Seljandi, Húrra Reykjavík , Hverfisgötu 50, 101 Reykjavík, kennitala: 420614-0470, virðisaukaskattsnúmer 117104. JS Reykjavík ehf. er skráð í Firmaskrá Íslands. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 16 ára til að versla á hurrareykjavik.is

Pöntun er bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun. Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar. Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup, sjá nánar í grein 11. Frekari upplýsingar um hvernig má rifta kaupum ásamt uppsagnareyðublaði er að finna í „Returns“ flipanum hér að neðan.

Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun. Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á.

Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum. Vöruúrval getur verið mismunandi milli vefverslunar og verslunnar. Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.

Verð eru stöðugt að breytast hjá seljanda vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu.. Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega. Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu. Sem dæmi má nefna eru bilanir, vírusar, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.

Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu eða greiðslukorti. Ef greitt er með greiðslukorti er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef greiðsla berst ekki, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu eru vörur fráteknar á lager þar til greiðsla berst. Vörur eru fráteknar í 1 dag með tilliti til frídaga, ef millifærsla berst ekki innan þess tíma er pöntun aflýst.

Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er fram í kaupferlinu hverju má búast við miðað við valda sendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands. Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef varan er uppseld. Allar pantanir yfir kr. 20.000 krefst undirskriftar reikningseiganda gegn framvísun persónuskilríkja þ.e. passa eða ökuskírteinis. Pantanir undir kr. 20.000 eru afhentar aðila á afhendingarstað. Ef að enginn er við er pöntun stungið inn um bréfalúgu ef kostur er. Allar skemmdir á vörum af hendi flutningsaðila eru á þeirra ábyrgð og að fullu bætt gagnvart viðskiptavini. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda. Ef að afhending vöru í heimakstri reynist árangurslaus er hægt að óska eftir nýjum afhendingartíma. Ef að afhending reynist árangurslaus í annað skiptið er vara tekin í geymslu þar til hún er sótt. Geymslutími miðast við 2 vikur og eftir það áskilur seljandi sér rétt til að rifta kaupum.

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samkvæmt vörulýsingu og ógallaðar. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu. Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila.

Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Líkt og lög um neytendakaup nr. 48/2003 kveða á um að ef viðskiptavinur leggur ekki fram kvörtun á innan við tveimur árum frá afhendingu þá rennur sá réttur viðskiptavina út. Ef noktun vöru er ætluð til talsvert lengri tíma þá rennur út réttur til kvartanna að fimm árum liðnum. Frekar upplýsingar má finna í „Claims / Reclamaition“ flipanum hér að neðan.

Persónulegar upplýsingar

Allar persónulegar upplýsingar um kaupanda vegna notkunar á vefsvæði JS Reykjavík ehf. (hurrareykjavik.is) verður farið með í samræmi við lög og reglur um meðferð persónulegra upplýsinga eins og þær eru á hverjum tíma.

Hurrareykjavik.is hefur hins vegar leyfi til að nýta eftirfarandi upplýsingar til markaðsrannsókna sem væntanlega leiða til betri þjónustu við kaupendur. Jafnframt áskilur seljandi sér rétt til að nýta þessar upplýsingar með samstarfsaðilum sínum í þeim tilgangi að bæta og til að bjóða fjölbreyttari þjónustu. Upplýsingar verða aftur á móti aldrei seldar eða gefnar þriðja aðila.

Kaupandi hefur rétt til að fá að sjá þær upplýsingar sem hurrareykjavik.is hefur um hann. Hafi kaupandi eitthvað út á þær að setja hefur hann rétt til að fá þær leiðréttar eða afmáðar án kostnaðar.

Tölvupóstur og viðhengi hans sem starfsfólk JS Reykjavík ehf. sendir gætu innihaldið trúnaðarupplýsingar eingöngu ætlaðar þeim sem hann er stílaður á. Sá sem fyrir tilviljun, mistök eða án heimildar tekur við tölvupóstinum, skal fara eftir 2. mgr. 44. gr. laga nr.107/1999 um fjarskipti og gæta fyllsta trúnaðar og tilkynna sendanda samstundis að upplýsingarnar hafi ranglega borist sér.

Hverfisgata 18A

101 Reykjavík

+354 5717101

hurra@hurrareykjavik.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagur - laugardagur

11:00-18:00

Sunnudagur

13:00-17:00

PANTANIR

Sendingar

Vöruskil

Endurkröfur

© 2024 Húrra Reykjavík